Skip to main content

Bláu augun þín

Ólafur Gaukur Þórhallsson

Key: D

Bláu augun þín
blika djúp og skær,
lýsa leiðina mína
líkt og stjörnur tvær,
þó að liggi leið
mín um langan veg
aldrei augnanna þinna
eldi gleymi ég.
Þau minna' á fjallavötnin
fagurblá,
fegurð þá
einn ég á.
Bláu augun þín
blika djúp og skær,
lýsa leiðina mína
líkt og stjörnur tvær,
Þau minna' á fjallavötnin
fagurblá,
fegurð þá
einn ég á.
Bláu augun þín
blika djúp og skær,
lýsa leiðina mína
líkt og stjörnur tvær,
lýsa leiðina mína
líkt og stjörnur tvær
Intró: Gítarlínan ofan á fyrstu 4 hljómana miðað við F# moll:
Intró: Gítarlínan hérna áttund neðar: