Skip to main content

Lítill fugl

Örn Arnarson

Key: D

Lítill fugl á laufgum teigi
losar blund á mosasæng,
heilsar glaður heiðum degi
hristir silfurdögg af væng.
Flýgur upp i himinheiðið
hefir geisla straum í fang,
siglir morgunsvala leiðið
sest á háan klettadrang.
Þykist öðrum þröstum meiri
þenur brjóst og sperrir stél.
Vill að allur heimur heyri
hvað hann syngur lista vel.
Skín úr augum skáldsins gleði
skelfur rödd við ljóðin ný.
Þó að allir þrestir kveði
þetta sama dirrin dí.
Þykist öðrum þröstum meiri
þenur brjóst og sperrir stél.
Vill að allur heimur heyri
hvað hann syngur lista vel.
Litli fuglinn ljóða vildi
listabrag um vor og ást.
Undarlegt að enginn skyldi
að því snilldarverki dást.