Skip to main content

Við gengum tvö

Valdimar Hólm Hallstað

Key: Am | Capo: 1

Við gengum tvö, við gengum tvö í rökkurró
við leiddumst hljóð, við leiddumst hljóð um húmgan skóg.
Þú varst yndi, þú varst yndi og ástin mín
og stundin áfeng, stundin áfeng eins og vín
Við hlýddum tvö, við hlýddum tvö í húmi ein
er blærinn kvað, er blærinn kvað við blöð á grein.
Ég var nóttin, ég var nóttin þögla þín
og þú varst eina, þú varst eina stjarnan mín.
Á meðan norðurljósin leiftra um bláan himininn
þá sit ég ein og þrái kveðjukossinn þinn