Skip to main content

Vorkvöld í Reykjavík

Sigurður Þórarinsson

Key: G

Svífur yfir Esjunni sólroðið ský,
sindra vestur gluggar sem brenni í húsunum.
Viðmjúk strýkur vangana vorgolan hlý,
vaknar ástarþráin í brjóstum á ný.
Kysst á miðju stræti er kona ung og heit,
keyra rúntinn piltar sem eru í stelpuleit.
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.
Tjörnin liggur kyrrsæl í kvöldsólarglóð
kríurnar þótt amstri og bjástri í hólmanum.
Hrjúfa sig á bekkjunum halir og fljóð
hlustar skáldið Jónas á þrastanna ljóð.
Dulin bjarkarlimi á dúnsins mjúku sæng
dottar andamóðir með höfuð undir væng.
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.
Hljótt er kringum Ingólf og tæmt þar hvert tár,
tryggir hvíla rónar hjá galtómum bokkunum.
Svefninn er þeim hóglega siginn á brár.
Sunnanblær fer mildur um vanga og hár.
Ilmur er úr grasi og angan moldu frá,
aftansólin purpura roðar vestursjá.
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.
Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar
Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík.